Spinning - hlaup - sund - og annað sprikl
Könnun
Hvort er skemmtilegra, hlaup eða spinning?
Spinning.
0 atkvæði

Hlaup.
0 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 0
25.01.2012 20:38:47 / spriklid

Gott að hjóla

Mætti loksins í hjólatíma seinni partinn í dag eftir langa pásu. Gott að komast á hjólið aftur, alltaf gaman í þessum tímum. Í tímanum var kynning á nýjum kennara sem verður í hádeginu á föstudögum. Það eru einmitt tímarnir sem ég hef verið að reyna að sækja þannig að það verður fróðlegt að sjá hvernig úr því spilast.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2012 21:03:16 / spriklid

Margt hugsað

Fór í hjólatíma. Var mætt vel tímanlega og því aðeins búin að hita upp áður en tíminn byrjaði. Gerði smá magaæfingar en þó ekki að neinu ráði, bara fikt. Góður tími, fín einbeiting og margt hugsað á mínu hjóli.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2012 21:23:37 / spriklid

Fékk fína útrás

Mætti í hjólatíma seinni partinn í dag, of seint að vísu en fékk þessa fínu útrás þrátt fyrir það. Mjög góður tími. Keypti kort í Laugum í síðustu viku til að komast oftar í ræktina. Mér finnst ekki nóg að komast bara tvisvar í viku að jafnaði. Finnst að það verði að vera minnst þrisvar. Er að hugsa um að taka lyftingarnar í Hress og skipta hjólunum á Hress og Laugar eftir því hvar ég er stödd í lífinu og á höfuðborgarsvæðinu. Hef ekki verið nógu sátt með hvernig þetta hefur gengið frá því í haust.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2012 17:58:59 / spriklid

Brilljant tími

Mætti í spinning-tíma í hádeginu. Brilljant tími, tók ágætlega á. Fór á eftir í magaæfingar en gat ekki neitt. Þarf að gera meira af magaæfingum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2012 22:36:46 / spriklid

Mætt

Hefur mætt oftar í ræktina en halda mætti en samt ekkert alltof oft. Fór í hefðbundinn hjólatíma í gær og naut þess mjög.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.12.2011 14:12:00 / spriklid

Heppin

Skellti mér loksins í hjólatíma í hádeginu eftir vikupásu. Tíminn var alveg stappaður og það kom mér svolítið á óvart, ég var eiginlega bara heppin að fá hjól. Fór svo á eftir í magaæfingarnar og það var jafn gott og vanalega. :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2011 21:06:22 / spriklid

Fór í ræktina

Fór í ræktina í dag og reyndar líka á mánudaginn. Hjólaði í bæði skipti. Lyfti smávegis í bæði skiptin. Fínir tímar, bæði á mánudag og í dag, og ágætlega tekið á. Hlakka til að mæta sem oftast í ræktina næstu daga enda einhvern veginn þannig tíð í þessu húsi að mig langar bara í ræktina og ekkert annað. Og helst að lyfta. :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2011 19:38:45 / spriklid

Hressandi að mæta

Fór í hjólatíma og naut þess ofan í tær. Alltof langt síðan síðast. Alltaf hressandi að mæta!

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2011 23:57:08 / spriklid

Hjól - hjól - hjól

Mætti í hjólatíma í dag. Alveg ljómandi tími. Magnað að finna hvað tónlistin skiptir miklu máli varðandi það að reka á eftir manni. Fór svo í magaæfingarnar á eftir en gat auðvitað ekki baun. Fann mjög fyrir því hvað það kemur niður á forminu að ég hef bara verið að mæta tvisvar í viku undanfarið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2011 19:30:48 / spriklid

Fín hjól

Hjolatími á fös.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2011 20:48:31 / spriklid

Gaman að hugsa

Frábært að komast á hjól áðan. Var svo sannarlega þörf á því. Það er svo gaman að hugsa og það er svo auðvelt og þægilegt á hjóli, margar hugmyndir sem koma í kollinn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2011 20:29:33 / spriklid

Kærkomið

Dreif mig í ræktina í dag eftir langa pásu. Fór bara einu sinni í næstu viku svo að þetta var kærkomið. Hjólaði og lyfti svo smá á eftir.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2011 20:27:04 / spriklid

Mætti í hjól

Mætti í spinning seinni partinn. Langt síðan ég komst síðast og ég hreinlega varð. Lét þess vegna allt annað víkja.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.11.2011 19:54:17 / spriklid

Hörmuleg í magaæfingum

Náði stórum hluta af hjólatímanum í hádeginu í dag. Mjög ánægð með það. Fór í magaæfingarnar á eftir en sýndi hörmulega frammistöðu. Þarf náttúrulega að fara að gera reglulega magaæfingar svo að maður geti eitthvað í þessum tímum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2011 20:55:15 / spriklid

Hjólatími

Fór í hjólatíma í gær.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 49